Reglur & skilmálar
- OJK-ÍSAM umboðsaðili Duracell á Íslandi er ábyrgðaraðili Duracell Kappakstursleiksins 2024
- Leikurinn stendur frá 5.júní – 15. júlí 2024
- Þátttakandi í leiknum þarf að hafa náð að lágmarki 18 ára aldri til að hafa þátttökurétt.
- Þátttakandi þarf að kaupa Duracell Optimum rafhlöðupakka í íslenskum verslunum eða vefverslunum á tímabilinu 1. Júní – 15. Júlí 2024.
- Þátttandi þarf að taka mynd af kassakvittuninni þar sem þarf að sjást greinilega hvaða vara er keypt, hvar,(verslun)og hvenær (dagsetning)
- Þátttakandi þarf að skrá inn upplýsingar sem beðið er um, nafn, kennitölu og símanúmer í tilbúið skráningarform á vefsíðu leiksins, Duracell.is, ásamt mynd af kvitttuninni og ýta svo á Skrá Mig hnappinn.
- Þátttakanda er skylt að kynna sér skilmála leiksins áður en hann tekur þátt og þarf að haka í sérstakt box í skráningarforminu því til staðfestingar áður en upplýsingar og mynd af kassakvittun er send.
- Þátttakandi ber ábyrgð á því að upplýsingarnar sem hann setur inn séu réttar og klári skráningarferlið
- Þátttakandi fær upp staðfestingarsíðu að upplýsingar hafi skilað með textanum “Takk fyrir þátttökuna. Haft verður samband við sigurvegarann”
- Vinningurinn - Ferð fyrir 2 á Kappaksturinn í Monza á Ítalíu 30. ágúst-2. Sept 2024. Innifalið í vinningnum er eftirfarandi fyrir tvo aðila: Flug til Mílanó Ítalíu 30. ágúst, Heimferð 2. sept, Gisting á hóteli í 3 nætur, Miðar á Kappaksturinn í Monza á Ítalíu 31.ágúst-1. sept (Tímataka og Kappaksturinn). Verðmæti vinnings er uþb. 500.000 kr.
- Ábyrgðaraðili er ekki ábyrgur ef upp koma óviðráðanlegar aðstæður sem hafa áhrif á leikinn, eða verðlaunin. Td. Seinkun á flugi, frestanir oþh.
- Vinningshafi verður dreginn út af handahófi og verður hringt í hann sama dag. Ef ekki næst í vinningshafa innan viku verður annað nafn dregið út.
- Nafn vinningshafans verður einnig tilkynnt á Facebook síðu OJK-ÍSAM
- Hverjum þátttakanda er heimilt að taka þátt eins oft og hann/hún vill en hver kassakvittun gildir bara 1x og því ekki heimilt að senda inn mynd af sömu kassakvittun oftar en 1x.
- Með þátttöku sinn í leiknum veitir þátttakandi heimild sína til söfnunar nafns, kennitölu og símanúmers í Duracell Kappakstursleikinn 2024.
- Með þátttöku sinni í leíknum er sigurvegarinn samþykkur því að hann sé tilbúinn að notkun á mynd og nafni sigurvegara sé birt.
- Upplýsingar um þátttakendur verða hvorki seldar til þriðja aðila né þær notaðar í markaðslegum tilgangi.
- Öllum upplýsingum um þátttakendur í leiknum verður eytt mánuði eftir úrdrátt.
- Starfsfólk OJK-ÍSAM annast framkvæmd leiksins og er óheimilt að taka þátt í honum.
- Framvísa þarf skilríkjum við móttöku vinningsins.