DuracellLALIGA
Duracell × LALIGA leikur 2026

Skilmálar
leiksins

Reglur &
skilmálar

  • OJK-ÍSAM umboðsaðili Duracell á Íslandi er ábyrgðaraðili Duracell LALIGA leiksins sem stendur frá 1.okt- 31. Des 2026.

  • Þátttakandi í leiknum þarf að vera með búsetu á Íslandi og hafa náð að lágmarki 18 ára aldri til að hafa þátttökurétt.

  • Þátttakandi þarf að skrá inn upplýsingar sem beðið er um, nafn, kennitölu og símanúmer í tilbúið skráningarform á vefsíðu leiksins, Duracell.is, og smella á skráningarhnappinn.

  • Þátttakanda er skylt að kynna sér skilmála leiksins áður en hann tekur þátt og þarf að haka í sérstakt box í skráningarforminu því til staðfestingar áður en upplýsingar eru sendar.

  • Þátttakandi ber ábyrgð á því að upplýsingarnar sem hann setur inn séu réttar og klári skráningarferlið

  • Þátttakandi fær upp staðfestingarsíðu að upplýsingar hafi skilað sér með textanum “Við höfum móttekið skráninguna”. Haft verður samband við sigurvegarann”

  • Vinningurinn – 2 Miðar á El Classico leik Real Madrid og Barcelona í La Liga deildinni á Spáni, LALIGA gjafapoki með fótboltatreyjum, VIP skoðunarferð um leikvanginn og 300.000 kr ferðasjóður fyrir flug og gistingu sem vinningshafi bókar sjálfur.

  • Ábyrgðaraðili er ekki ábyrgur ef upp koma óviðráðanlegar aðstæður sem hafa áhrif á leikinn, eða verðlaunin. Td. Seinkun á flugi, frestanir oþh.

  • Vinningshafi verður dreginn út af handahófi og verður hringt í hann sama dag. Ef ekki næst í vinningshafa innan viku verður annað nafn dregið út.

  • Nafn vinningshafans verður einnig tilkynnt á Facebook síðu OJK-ÍSAM

  • Hverjum þátttakanda er heimilt að taka þátt – skrá sig 4x í leikinn.

  • Með þátttöku sinn í leiknum veitir þátttakandi heimild sína til söfnunar nafns, kennitölu og símanúmers í Duracell LALIGA leiknum 2026/2027.

  • Með þátttöku sinni í leíknum er sigurvegarinn samþykkur því að hann sé tilbúinn að notkun á mynd og nafni sigurvegara sé birt.

  • Upplýsingar um þátttakendur verða hvorki seldar til þriðja aðila né þær notaðar í markaðslegum tilgangi.

  • Öllum upplýsingum um þátttakendur í leiknum verður eytt mánuði eftir úrdrátt

  • Starfsfólk OJK-ÍSAM annast framkvæmd leiksins og er óheimilt að taka
    þátt í honum.

  • Framvísa þarf skilríkjum við móttöku vinningsins.

1. Almennt

Leikurinn er haldinn af [Umboðsaðili Duracell á Íslandi, kt.] („skipuleggjandi“). Leikurinn stendur frá [dags.] til [dags.] kl. 23:59. Með þátttöku samþykkir þátttakandi skilmála þessa.

2. Þátttaka

Þátttaka er opin öllum 18 ára og eldri með lögheimili á Íslandi. Til að taka þátt þarf að kaupa Duracell rafhlöður á tímabilinu, skrá nafn, netfang og kennitölu á duracell.is og hlaða upp mynd af kvittun þar sem dagsetning og vara sjást. Ein skráning gildir fyrir hverja kvittun. Starfsfólk skipuleggjanda og nánustu aðstandendur mega ekki taka þátt.

3. Vinningur

Vinningurinn er ferð fyrir tvo á LALIGA leikinn [lið vs lið] á [leikvangur, dags.]: flug frá Keflavík, gisting í 3 nætur og tveir miðar á leikinn. Vinningur er ekki framseljanlegur og ekki greiddur út í peningum. Ferðakostnaður umfram það sem talið er upp, s.s. fæði og ferðir innanlands á Spáni, er á ábyrgð vinningshafa.

4. Útdráttur

Dregið verður úr gildum skráningum [dags.]. Haft verður samband við vinningshafa með tölvupósti og nafn birt á duracell.is. Svari vinningshafi ekki innan 7 daga áskilur skipuleggjandi sér rétt til að draga að nýju. Vinningshafi þarf að framvísa upprunalegu kvittuninni.

5. Persónuvernd

Persónuupplýsingar eru einungis notaðar til að framkvæma leikinn og hafa samband við vinningshafa. Þeim er eytt innan 60 daga frá lokum leiksins.

6. Annað

Skipuleggjandi áskilur sér rétt til að breyta skilmálum, fresta eða fella niður leikinn ef óviðráðanlegar aðstæður krefjast. Leikurinn er ekki á vegum LALIGA eða knattspyrnufélaganna sem leika. Spurningar: [email protected].